|
Búðakirkja er í Ingjaldshólsprestakalli í Snæfells- og
Dalaprófastsdæmi. Fyrsta kirkjan var reist á Búðum 1703 (Bendt
Lauridsen). Hún var rifin og önnur reist. Árið 1816 var
Búðakirkja lögð niður. Steinunn Lárusdóttir barðist fyrir
eindurreisn Búðakirkju og fékk konungsleifi til þess 1847 og
árið eftir reis ný kirkja á gamla grunninum.
Hún var endurreist 1984-86 undir umsjá
Harðar Ágústssonar listmálara í upprunalegri mynd og vígð 6. sept. 1987. Þar er klukka frá
1672, önnur án ártals, altaristafla frá 1750, gamall
silfurkaleikur, tveir altarisstjakar úr messing frá 1767 og
hurðarhringur frá 1703. Krossinn á altarinu gaf og smíðaði Jens
Guðjónsson gullsmiður. |