|
Dagverðarnesskirkja er í
Hvammsprestakalli í Snæfells- og Dalaprófastsdæmi.
Hún
varð sóknarkirkja 9. júní 1758, áður var hún hálfkirkja. Hún
var í fornum sið helguð Magnúsi Erlendssyni, jarli í
Orkneyjum. Elztu heimildir um bænhús eru
frá miðri 13. öld. Samkvæmt jarðabók Dalasýslu
frá 1731 var þar embættað vor og haust.
Núverandi kirkja var endurbyggð árið 1933, að
mestu úr viðum eldri kirkjunnar frá árinu 1848.
Sóknarpresturinn, séra Ásgeir Ásgeirsson, p´rofastur í Hvammi, vígði
hana sunnudaginn 22 júlí árið 1934. Byggingarkostnaður var kr.
4.777.36.
Hún var lagfærð 1984. Meðal merkra gripa eru
altaristöflur frá 1706 og 1762 og prédikunarstóll frá 1783. Á
Prédikunarstólnum stendur: „Gud til Ære og
KirKen i Dagverdsrnæs til Zirat er denne Prædikestoel gieven af Jon
BrandsSen og hans Qvinde Gudlaug Jons Daatter. Anno 1783."
Altaristaflan frá 1706 er líklega úr Búðardalskirkju á
Skarðsströnd. Á töflunni er Kristur á krossi og sitthvorum
megin við krossinn eru María Mey og Jóhannes postuli. Fyrir neðan er
mynd af síðustu kvöldmáltíðinni. Sitthvorum
meginn við krossmyndina stendur: „Til
Guds ære og kirkens Ziraf haftver gievet ..... Torbjörnsön Anno 1706."
Á
neðri töflunni (1762) er
mynd af síðustu kvöldmáltíðinni og fyrir
ofan er ský með nafni Guðs á hebresku.
Töflunni er lokað með mynd af guðspjallamönnunum, Matteusi og
Markúsi að utanverðu og Lúkasi og Jóhannesi að innanverðu. Texti fyrir
neðan töfluna er „Ano Mad Charitas Bjarne
Datter 1762." Í garðinum er jarðsettur Lárus M. S. Johnsen (29/9
1819-12/1 1859), kvæntur 23/5 1849. (Matt.
5:5-8.). Ártal á hurðarútbúnaðinum er
1867.
(Heimild:
Óskar Ingi Ingason;
www.aknet.is/oskarutd). |