|
Hallgrímskirkja
í Vindáshlíð var reist úr timbri árið 1878 á Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd. Höfundur hennar var Eyjólfur
Þorvarðsson, forsmiður að Bakka. Kirkjan var flutt að
Vindáshlíð árið 1957 og þá var reistur kór og innri gerð
hennar var breytt verulega. Þessar breytingar annaðist
Aðalsteinn Thorarensen, húsgagnasmiður.
Hún var endurvígð á þessum nýja stað 16. ágúst 1959.
Hallgrímsnafnið hefur hún borið æ síðan. Kirkjan er
einkaeign Vindáshlíðar, einnar starfstöðvar KFUM og KFUK á
Íslandi. Hún þjónar æskulýðsstarfi og er vel sótt
allt árið.
Kirkjan var
friðuð 1. janúar 1990.
20.11.08. Guðrún Kristjánsdóttir, formaður stjórnar
Vindáshlíðar KFUM og KFUK á Íslandi, var svo elskuleg, að
koma á framfæri leiðréttingum, sem hefur nú verið komið
fyrir.
Hallgrímskirkja í Saurbæ.
Hallgrímskirkja í
Reykjavík. |