|
Hellnakirkja er í Staðarprestakalli í Snæfells-
og Dalaprófastsdæmi. Á Hellnum var sett kirkja 1880, þegar
Einarslóns- og Laugarbrekkusóknir höfðu verið sameinaðar. Nú er
þar útkirkja frá Staðarstað, allar götur síðan 1917.
Kirkjan,
sem nú stendur, var vígð 12. ágúst 1945. Hún er steinsteypt og
var í byggingu á árunum 1943-1945. Altaristaflan sýnir Jesús og
lærisveinana í Emmaus. Umgerð hennar er eftir Jóhannes Helgason
(1887-1920, myndskera í Gíslabæ á Hellnum. Hann var mikið
listamannsefni og allt stefndi að því, að Alþingi styrkti hann
til náms erlendis. Úr því varð þó ekki, því hann dó sviplega,
varð úti á leið til Hellissands. Tveir forláta koparhringir eru
á kirkjuhurð og sáluhliði, gjafir frá séra Ásgrími Vigfússyni
og Sigríði Ásgeirsdóttur, konu hans. |