|
Hjarðarholtskirkja er í Hjarðarholtsprestakalli
í Snæfells- og Dalaprófastsdæmi. Hún var reist 1904 og vígð
sama ár. Hún er krosskirkja úr timbri með allháum ferstrendum
turni, járnvarin. Rögnvaldur Ólafsson var húsameistari og kirkjan
mun hafa verið prófverkefni hans. Hún er minnst þriggja
krosskirknanna, sem hann teiknaðimeð gríska krossinn
að fyrirmynd.
Kirkjunni hefur verið breytt
nokkuð frá upprunalegri gerð, einkum að innan. Skírnarsárinn,
gerður af Guðmundi Kristjánssyni, bónda og myndskera á
Hörðubóli, er meðal margra góðra gripa hennar. Silfurskálin í
honum var gjöf til kirkjunnar 1964.
Katólskar kirkjur staðarins
voru helgaðar Jóhannesi skírara. Kirkjur, sem tilheyra
Hjarðarholtsprestakalli eru Hjarðarholt, Kvennabrekka,
Stóra-Vatnshorn og Snóksdalur. |