|
Húsafellskirkja er í Reykholtsprestakalli í
Borgarfjarðarprófastsdæmi. Bygging kapellunnar á Húsafelli hófst
fyrir miðja 20. öldina og hún var vígð 1973.
Ásgrímur Jónsson,
listmálari, teiknaði hana en arkitekt var Halldór H. Jónsson.
Kristinn Kristjánsson var yfirsmiður. Hún er úr timbri og tekur
60-70 manns í sæti. Hún er ekki sóknarkirkja og er aðallega
notuð á sumrin.
Ferðamenn nota hana gjarnan og sækja
guðsþjónustur, þegar Reykholtsprestur messar. Húsafell var
kirkjustaður fyrrum og katólskar kirkjur þar voru helgaðar Guði,
Maríu guðsmóður og heilagri Cecilíu. Útkirkja var í
Kalmanstungu. Prestakallið í Húsafelli var lagt niður 1812 og
kirkjan þar aflögð. |