|
Lundarkirkja er í Hvanneyrarprestakalli í
Borgarfjarðarprófastsdæmi. Bærinn Lundur er kirkjustaður, fyrrum
prestssetur og þingstaður í Lundarreykjadal. Þarna var hof í
heiðnum sið og nafnið gæti átt rót sína að rekja til
helgilundar í grennd við blótstað.
Kirkjan á Lundi var vígð
1963. Hún er úr steinsteypu með háum turni yfir forkirkju.
Þorvaldur Brynjólfsson frá Hrafnabjörgum var yfirsmiður. Gréta
Björnsson skreytti hana að innan. Útkirkja var á Fitjum í
Skorradal og árið 1907 var prestakallið lagt niður og sóknirnar
lagðar til Hesþinga og síðar til Hvanneyrar. Katólskar kirkjur á
staðnum voru helgaðar Guði, Maríu guðsmóður og heilögum
Lárentíusi. |