|
Miklaholtskirkja er í Stađarstađarprestakalli í
Snćfellsnes- og Dalaprófastsdćmi. Bćrinn Miklaholt er
kirkjustađur og fyrrum prestssetur í Miklaholtshreppi. Elzti
máldagi kirkjunnar, líklega frá 1181, er enn til. Katólsku
kirkjurnar á stađnum voru helgađar Jóhannesi skírara og útkirkja
var á Rauđamel ytri frá 1645.
Kirkjan, sem nú stendur á
Fáskrúđarbakka, var vígđ 1936 og Miklaholtskirkja lögđ af.
Prestssetriđ var jafnframt flutt ađ Söđulsholti. Mörgum fell
ţessi ráđstöfun illa, svo ađ Magnús Sigurđsson, bóndi í
Miklaholti, hafđi forgöngu fyrir byggingu kirkju úr steinsteypu
1945. Hún var vígđ 28. júlí 1946.
Turninn og forkirkjan voru
reist 1961. Kristján Gíslason var yfirsmiđur.
Fáskrúđarbakkasöfnuđur á og rekur kirkjuna. Í henni eru margir
góđir gripir. Altari og prédikunarstóll eru úr gömlu kirkjunni
og ýmsir gripir frá 18. öld. Númeratöfluna gerđi líklega Sölvi
Helgason 1844. Hún er í vörzlu sóknarprests. Kurt Zier gerđi
altaristöfluna og á skírnarsánum er mynd eftir Ragnar Kjartansson. |