Narfeyrarkirkja,

Meira um Ísland


NARFEYRARKIRKJA
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Narfeyrarkirkja er í Stykkishólmsprestakalli í Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi.  Bærinn og kirkjustaðurinn Narfeyri er vestastur bæja á Skógarströnd, rétt austan Álftafjarðar.  Þar hét áður Geirröðareyri eftir fyrsta landnámsmanninum þar.  Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar heilögum Nikulási.

Á Narfeyri var eina kirkjan á Skógarströnd til ársins 1563, þegar kirkja var reist á Breiðabólstað  Narfeyrarkirkja var útkirkja frá Breiðabólsstað frá 1563, unz Stykkishólmsprestakall tók við 1970.  Núna stendur lítil timburkirkja á Narfeyri.  Ofsaveður feykti henni af grunninum 1867, en hún var endurbyggð á sama stað og endurvígð 19. nóvember 1867.  Margt gamalla og góðra gripa er í kirkjunni.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM