Rauðamelskirkja er í Staðarstaðarprestakalli í
Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi. Kirkjan á Rauðamel ytri er
lítil og snotur timburkirkja. Fornt kirkjusetur á Rauðamel ytri var
endurvakið árið 1570 og hin forna kirkjusókn Haffjarðareyjar
lögð til hennar. Rauðamelskirkja var útkirkja frá
Kolbeinsstöðum til 1645 og síðan frá Miklaholti.