|
Síðumúlakirkja er í Reykholtsprestakalli í
Borgarfjarðarprófastsdæmi. Síðumúli er bær og kirkjustaður í
neðanverðri Hvítársíðu. Núverandi kirkja var byggð 1926. Hún
er steinsteypt. Kirkjusmiður var Auðunn sigurðsson frá Akranesi.
Altari, gráður og prédikunarstóll er úr eldri kirkjum.
Altaristaflan sýnir Krist með börnunum með íslenzkt landslag að
baki. Þetta er eftirmynd, gerð af Eyjólfi Eyfells, listmálara.
Krosslaga skírnarsár úr graníti á marmarastöpli eftir Jóhannes
Eyfells prýðir kirkjuna. Fornar róðuleifar, mynd af Maríu
guðsmóður úr steini og Barbörumyndir á útskornum altaristöflum
úr eldri kirkjum í Reykholti og Síðumúla eru varðveittar í
Þjóðminjasafni. Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar
Maríu guðsmóður. Síðumúlakirkja var fyrrum útkirkja frá
Gilsbakka og frá Reykholti síðan 1907. |