|
Austurgötu 7 340 Stykkishólmur.
Hún var vígð (blessuð) 8. desember 1935.
Fransiskussystur
komu til Stykkishólms árið 1935 til að stofna sjúkrahús, leikskóla,
prentsmiðju og kapellu, sem var öllum opin.
Kapellan var tileinkuð Maríu mey, hinni stöðugu hjálp vorri.
Nýtt hús var byggt fyrir systurnar á sjöunda áratugnum og
einnig ný kapella. Þarna
er prestur, sem sinnir systrunum og katólikkum í bænum og nágrenninu.
Breytingar
urðu á klausturstarfinu eftir mitt ár 2009, þegar
Maríusystur tóku við af fjórum Fransiskussystrum, sem voru
eftir.
Nánar |