|
Staðarkirkja er í Staðarstaðarprestakalli í
Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi. Staðarstaður á Ölduhrygg er
prestsetur og kirkjustaður frá fornu fari. Katólskar kirkjur
staðarins voru helgaðar Maríu guðsmóður og í sókninni voru
nokkur bænhús og kirkjur, bæði í Syðri-Görðum og Gaul, fram um
siðaskipti.
Fyrsta útkirkjan varð kirkjan á Búðum, vestasta bæ
í Staðarsveit. Hún var byggð 1712. Kirkjan á Hellnum bættist
við 1917. Kirkjan, sem nú stendur á Staðarstað, er steinkirkja,
byggð1942-1945 með forkirkju og turni. Hún tekur u.þ.b. 100 manns
í sæti. Altaristaflan er máluð á kórgaflinn. Hún minnir
óneitanlega á söguna af Galdra-Lofti. |