|
Bakkagerðiskirkja er í Desjamýrarprestakalli í
Múlaprófastsdæmi. Skammt frá Álfaborg
í Borgarfirði eystra,
neðst í þorpinu, stendur Bakkagerðiskirkja. Áður var kirkja á
Desjarmýri en sú, sem nú stendur í Bakkagerði var vígð 1901.
Í
kirkjunni er forkunnarfögur altaristafla, máluð af Jóhannesi
Kjarval 1914. Hún sýnir Krist flytja fjallræðuna, standandi á
Álfaborginni með Dyrfjöll í baksýn. Þessi altaristafla fékkst
ekki vígð, vegna þess, að myndsvið hennar er Álfaborgin. Taflan
er eitt merkasta listaverk Kjarvals og stór hluti ferðamanna sem
heimsækja Borgarfjörð skoðar hana. |