Eiðakirkja er í Eiðaprestakalli í
Múlaprófastsdæmi. Katólskar bændakirkjur á staðnum voru
helgaðar Maríu guðsmóður. Árið 1856 voru Eiða- og
Hjaltastaðasóknir sameinaðar og síðar líka Kirkjubæjarsókn.
Eiðaprestakall var síðan endurreist árið 1959 og kirkjurnar á
Eiðum, Hjaltastað, Kirkjubæ og Sleðbrjót tilheyra því. Kirkjan,
sem stendur nú á Eiðum, var reist 1886.