|
Eskifjarðarkirkja er í Eskifjarðarprestakalli í
Austfjarðaprófastsdæmi. Fyrsta fríkirkja landsins var reist á
Eskifirði 1884, en 130 m² þjóðkirkja var byggð þar árið 1900. Prestur
fluttist til Eskifjarðar frá Hólmum í Reyðarfirði árið 1930.
Ný kirkja var vígð
sunnudaginn 24. september 2000. Karl
Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vígði hana og viðstaddur var
menntamálaráðherra, Björn Bjarnason.
Nýja kirkjan er sérstaklega hönnuð með tónleika í huga
og hún mun þjóna sem menningarhús.
Salurinn tekur rúmlega 300 manns í sæti.
Hann má opna fram í anddyri, sem tekur 100 manns í sæti.
Kór Fjarðarbyggðar og barnakór sungu.
Tónlistaratriði voru undir stjórn Ágústs Ármanns Þorvaldssonar,
Daníels Haraldssonar og Gillians Hawthorn.
Ingibjörg
Klemensdóttir og Helga Unnarsdóttir opnuðu
leirlistarsýningu.
Arkitektastofa Gylfa Guðjónssonar hannaði kirkjuna.
Hún er 860 m². Þar er einnig safnaðarheimili, skrifstofur og geymsluhús. |