|
Hoffellskirkja
er í Bjarnanessókn og var kirkjustaður um aldir. Þá var hún
kirkja Hoffellssóknar allt til 1894. Jón Guðmundssonb, bóndi,
keypti eignarhlut sóknarinnar í húsinu og árið 1920 var lokið við
endurbætur þess. Árið 1981 var endurbyggði ábúendur kirkjuna frá
grunni. Gólf og sökkull voru steyptir og þak klætt bárujárni.
Inni er furupanell og sæti fyrir 45 manns. Margt fallegt
handverk er eftir heimamenn. Áki Gränz málaði altaristöfluna og
Þóra Guðmundsdóttir frá Svínafelli annaðist útsaum stóla.
Predikunarstóll og ljósakróna eru úr gömlu kirkjunni. Notkun
kirkjunnar hefur að mestu ráðizt af þörfum fjölskyldunnar. Þar
er ætíð messað á jólum og boðið til messukaffis að athöfn lokinni.
Kirkjan stendur sjaldnast opin en ábúendur opna hana gjarnan, ef óskað
er. |