|
Kirkjubæjarkirkja er í Eiðaprestakalli
í Múlaprófastsdæmi. Kirkjubær
er bær og kirkjustaður í Hróarstungu og prestssetur til 1956, þegar
sóknin var lögð til Eiða. Katólskar
kirkjur á Kirkjubæ voru helgaðar Maríu guðsmóður og núverandi
kirkja var byggð 1851. Hún
er stórt og stílhreint timburhús, hið merkasta allra kirkna á
Austurlandi. Séra Jón
Þorsteinsson lét reisa kirkjuna.
Hún er velbyggt hús og var tjörguð að utan annað veifið
og hefur ekki þurft mikið viðhald. Bárujárnsþakið var sett á hana árið 1915 og árið
1929 var hún klædd bárujárni að utan.
Samtímis
voru útveggir málaðir hvítir og þakið rautt.
Einnig voru gerðar breytingar á innviðum. Árið 1980 hófst viðgerð undir stjórn Harðar Ágústssonar,
listmálara, og Þórs Magnússonar, þáverandi þjóðminjavarðar.
Viðgerðinni lauk 1992. Síðan
hefur
farið fram viðgerð innandyra undir stjórn og leiðsögu
húsfriðunarnefndar.
Snorri Vigfússon gerði við kirkjuna að innan og málaði og
lagfærði húsgögn. Prédikunarstóllinn
er frá dögum Guðbrands biskups Þorlákssonar á Hólum, skömmu
eftir siðaskiptin, með myndum af postulunum og dönsku konungshjónunum,
sem gáfu hann.
Skírnarskálin
er úr íslenzkum leir og umgerð úr tré, sem Ríkharður Jónsson
skar. Söngtaflan er frá
árinu 1805 og harmónium kirkjunnar er frá árinu 1891.
Kirkjubær er kominn í byggð aftur.
Áður en Lagarfljót var brúað hjá virkjuninni og fossinum
var lögferja í Kirkjubæ
Sunnudaginn
4. ágúst 2001 var 150 ára afmælis kirkjunnar minnst á veglegan
hátt.
Kristján Valur Ingólfsson leiddi tíðagjörð um morguninn
og síðdegis predikaði Karl Sigurbjörnsson, biskup og sera Sigfús
J. Árnason, prósfastur og sera Jóhanna I. Sigmarsdóttir, sóknarprestur,
þjónuðu fyrir altari. Kór
Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna sungu. Rosemary Hewlett lék á orgelið og lét skíra barn sitt við
hátíðarmessuna. Sóknarnefnd
bauð til veglegs kirkjukaffis og hátíðardagskrár eftir messuna.
Hátíðinni lauk með kvöldbænum.
Meðal góðra gjafa, sem kirkjan fékk við þetta tækifæri
voru tvær biblíur, nýr hökull og stólar.
Liðlega 200 manns sóttu kirkjuhátíðina. |