|
Kirkjan er í
Kolfreyjustaðarprestakalli í Austfjarðaprófastsdæmi. Hún er á
Fáskrúðsfjarðarströnd að austan. Katólskar kirkjur þar voru
helgaðar heilögum Sixtusi. Sókninni var skipt 1913 og útkirkja er
á Búðum. Kirkjan,sem nú stendur, var byggð sumarið 1878 úr
timbri. Finnbogi Sigmundsson, trésmiður frá Seyðisfirði, var
yfirsmiður. Hún var upphaflega með skarsúð, en 1912 var loftið
þiljað að innan og húsið járnvarið. Ljóskross var settur í
staðinn fyrir trékross á vesturstafninn 1966. Altarið og
prédikunarstóllinn eru frá sama tíma og kirkjan var byggð og með
sama útliti.
Gréta og Jón Björnsson máluðu kirkjuna að
innan 1957. Skírnarsáinn skar þýzkur maður, Wilhelm Bachman
og altaristaflan er eftir danskan málara, Anker Lund, sem
málaði margar slíkar í aðrar kirkjur landsins. Kaleikur og
patina eru forn. Kolfreyja tröllskessa bjó skammt frá staðnum. Eitt
sinn ætlaði hún að ná í prest til matar. Hann slapp naumlega
vegna þess, að skessan var vanfær og náði að hringja
kirkjuklukkunum, þegar skessan rak tærnar í kirkjugarðinn og
datt endilöng. Hún mælti svo um, að kirkjugarður skyldi
þaðanaf aldrei standa á staðnum og það þykir hafa rætzt. |