|
Reyðarfjarðarkirkja er í Eskifjarðarprestakalli
í Austfjarðaprófastsdæmi. Hún var byggð 1910 og var endurnýjuð
á 8. áratugnum. Minnismerki um drukknaða sjómenn stendur á lóð
hennar. Prestar hafa setið á Eskifirði síðan 1930 en áður á
Hólmum.
Árið 1880 sætti stór hluti sóknarbarna sig ekki við
veitingu prestsembættisins og stofnaði fyrsta fríkirkjustöfnuðinn
á landinu. Þess sjást greinileg merki í þorpinu, því að þar
eru tveir kirkjugarðar, annar vígður fríkirkjusöfnuðinum. |