|
Seyðisfjarðarkirkja er í
Seyðisfjarðar-prestakalli í Múlaprófastsdæmi. Kirkja
Seyðisfjarðarsóknar stóð í áratugi á Vestdalseyri eftir að
hún var flutt frá Dvergasteini. Hún var rifin, þegar fólki
fækkaði í sókninni og önnur byggð á Fjarðaröldu úr viðum
hennar að hluta. Hún var vígð 1922 og tekur 300 manns í sæti.
Hún hefur verið endurbætt mikið og kórinn var vígður að nýju
1981.
Safnaðarheimili, sem var reist
1977-78, er sambyggt kirkjunni, að hluta fyrir gjafafé norska
sjómannatrúboðsins, sem seldi hús sitt á Seyðisfirði. Prestssetrið var
flutt frá Dvergasteini til kaupsstaðarins 1938. |