|
Skeggjastaðakirkja er í Skeggjastaða-prestakalli
í Múlaprófastsdæmi. Skeggjastaðir eru bær, kirkjustaður og
prestssetur við Bakkafjörð á Langanesströnd. Kirkjan, sem nú
stendur, er úr timbri, byggð 1845, og því einhver elzta kirkja
Austurlands. Hún tekur u.þ.b. 100 manns í sæti.
Þakið er úr
timbri, rennisúð að utan en skarsúð að innan, póstaþil er inni.
Það var enginn turn á kirkjunni upphaflega, en hann ásamt
viðbyggingu bættist við, þegar hún var tekin til gagngerðrar
viðgerðar 1961-62. Í viðbyggingunni er forkirkja og skrúðhús.
Kirkjunni var lyft og hún stendur nú á steyptum grunni. Gréta og
Jón Björnsson skreyttu hana og máluðu. Prédikunarstóllinn er
danskur, líklega frá fyrri hluta 18. aldar. O. Knippel málaði
altaristöfluna 1857. |