|
Sleðbrjótskirkja er í Eiðaprestakalli í
Múlaprófastsdæmi. Sleðbrjótur er fornt höfuðból í
Jökulsárhlíð. Bænhús var þar á katólskum tímum, en ný
steinkirkja var vígð þar 10. júlí 1927. Fimm bændur í Jökulsárhlíð
tóku sig saman og byggðu hana. Kirkjusóknin var færð til hennar,
en hún hafði áður legið undir Kirkjubæ í Hróarstungu.
Í kaþólskum sið voru
þrjú bænhús í Hlíðinni og þar á meðal eitt á Sleðbrjót. Eftir að þau
lögðust af átti Jökulsárhlíð kirkjusókn yfir Jökulsá að Kirkjubæ í
Hróarstungu.
Samþykkt var árið 1920 að skipta Kirkjubæjarsókn í tvær sóknir.
Kirkjubæjarsókn og Sleðbrjótssókn og eftir það var farið að huga að
kirkjubyggingu á Sleðbrjót. Fimm bændur í Jökulsárhlíð tóku að sér að
sjá um byggingu kirkjunnar árið 1926 og var hún vígð ári síðar.
Kirkjan sem er steinkirkja var byggð eftir teikningu Guðjóns
Samúelssonar en yfirsmiður við verkið var Guðjón Jónsson frá
Freyshólum. Söfnuður Sleðbrjótssóknar hefur lagt alúð við umhirðu og
viðhald kirkjunnar og var hún í vor máluð að innan af Snorra
Guðvarðarsyni, kirkjumálara.
Sigurjón Jónsson, á Kirkjubæ var fyrsti prestur sem þjónaði
Sleðbrjótssókn. Hann lét af störfum 1956. Eftir það þjónaði Einar Þór
Þorsteinsson á Eiðum til 1999. Núverandi sóknarprestur er Jóhanna
Sigmarsdóttir.
Jóhanna Sigmarsdóttir, sóknarprestur í Sleðabrjótskirkju
srjohanna@simnet.is |