|
Stöðvarfjarðarkirkja er
í Heydalaprestakalli í
Austfjarðaprófastsdæmi. Hún var byggð árið 1925. Yfirsmiður
var Hóseas Björnsson frá Höskuldsstöðum í Breiðdal.
Prestssetur var lengi í Stöð, en kirkjan þar var rifin 1925 (byggð
1879).
Getið er um kirkju á Stöðvarfirði í kirknatali Páls
biskups um 1200. Númerataflan í kirkjunni var flutt úr
Stöðvarkirkju og er frá 1887. Altaristaflan, sem sýnir
krossfestinguna, er líklega eftir Þorstein Guðmundsson í Hlíð.
Ríkharður Jónsson gerði skírnarsáinn. Stöðvarfjörður heyrir
nú undir Heydalaprestakall.
Gamla kirkjan
hefur verið gistiheimili fyrir svefnpokaferðamenn um nokkurra ára
skeið. |