|
Stafafellskirkja er í Bjarnanesprestakalli í
Skaftafellsprófastsdæmi. Stafafell er bær og kirkjustaður í Lóni.
Þar var áður prestssetur og höfuðból. Stafafell bar fyrst á
góma, þegar Þangbrandur trúboði kom þangað til að snúa bónda
til kristni. Bóndi neitaði og Þangbrandu vó hann. Allt frá
siðaskiptum fram yfir aldamótin 1900 höfðu 20 prestar setið
staðinn og 13 þeirra hvíla í kirkjugarðinum.
Prestssetrið var
aflagt með lögum 1907 og þau komu til framkvæmda 1920. Katólskar
kirkjur voru helgaðar Maríu guðsmóður. Kirkjan, sem nú stendur,
var byggð 1866-68 úr timbri. Prédikunarstóllinn
er gamall og á honum eru myndir af guðspallamönnunum.
Altaristaflan er talin vera frá 1670. Fjórar til fimm
franskar fiskiskútur fórust í
ofsaveðri við Horn og Lón 6. marz 1870. Fjöldi skipverja
fórst en öðrum var bjargað. Fjörutíu þeirra voru jarðaðir í
kirkjugarðinum að Stafafelli. |