|
Þingmúlakirkja er í Vallanesprestakalli í
Múlaprófastsdæmi. Hún var byggð 1886. Yfirsmiður var Niels
Jónsson í Sauðhaga á Völlum. Otto Wathne á Seyðisfirði seldi
efnið til byggingarinnar gegn veði í kirkjunni. Hún var upphaflega
klædd með járni að utan. Árið 1980 var gert vel við hana og
hún færð til upprunalegs horfs, járnlaus. Þórarinn B.
Þorláksson málaði altaristöfluna 1916. Ljósahjálmur með miklu
glerskrauti er úr gömlu kirkjunni og númerataflan er frá 1802, úr
kirkjunni á Hallormsstað.
Þingmúli var þingstaður
Austfirðingafjórðungs og Múlasýslunafnið er þaðan komið.
Þingmúlaeldstöðin er talin meðal mestu
megineldstöðva Austfjarða. Ríólítfjöll allt frá
botni Reyðarfjarðar til Skriðdals og Fljótsdalshéraðs
einkenna hana sem og aðrar. Áberandi slík fjöll eru
Áreyjatindur, Sandfell (1157m), Skúmhöttur (1229m) og
Kistufell (1239m). Þykk gjóskulög einkenna þessar
fornu eldstöðvar og víða ber á flikrubergi (ignímbríti),
berggöngum og ummynduðum jarðhitasvæðum. Víða eru
berggangar allt að 70% blágrýtisins á Austfjörðum. |