|
Glæsibæjarkirkja er í Möðruvallaprestakalli í
Eyjafjarðarprófastsdæmi. Glæsibær er bær og kirkjustaður í
Kræklingahlíð, u.þ.b. 10 km norðan Akureyrar. Þar voru
katólskar kirkjur helgaðar heilögum Nikulási. Útkirkjur voru í
Lögmannshlíð og á Svalbarði. Prestakallið var lagt niður 1880
og öll Glæsibæjarsókn og ytri hluti Lögmannshlíðarsóknar voru
lagðar til Möðruvalla, en fremri hluti Lögmannshlíðarsóknar til
Akureyrar og Svalbarðssókn til Laufáss.
Timburkirkjan í Glæsibæ
var byggð 1866. Þorsteinn Daníelsson byggði hana. Endurbygging að
hluta fór fram 1929, þegar turninn var reistur.
Kirkjan var upphafleg íbúðarhús á Ósi í Hörgárdal, byggt
1858. Silfurkaleikurinn ber ártalið 1612 (eða 1672) og
Arngrímur Gíslason, málari, málaði altaristöfluna líklega nálægt 1870. Meðal góðra bóka
kirkjunnar er Þorláksbiblía. |