Árbæjarkirkja er í Fellsmúlaprestakalli í
Rangárvallaprófastsdæmi. Hún var byggð árið 1887. Katólskar
kirkjur í Árbæ voru helgaðar Maríu guðsmóður og Jóhannesi
skírara. Sóknin var í Holtaþingaprestakalli, sem var lagt niður
1907 og sóknin lögð til Kálfholts. Árbær stendur á vesturbakka
Ytri-Rangár.