|
Bræðratungukirkja er í Skálholtsprestakalli í
Árnesprófastsdæmi. Þar var kirkja, sem var helguð Andrési
postula á katólskum tíma og útkirkja frá Torfastöðum til 1952,
er sóknin var lögð undir Skálholt. Kirkjan, sem enn stendur var
vígð 1911.
Magnús Sigurðsson (1651-1707) bjó í Bræðratungu á síðari hluta 17.
aldar. Hann var mikill drykkjumaður, auðugur og á margan hátt vel
gefinn. Hann varð óður við drykkju og kona hans, Þórdís Jónsdóttir,
flúði frá honum til systur sinnar, biskupsfrúarinnar í Skálholti. Þá
var Árni Magnússon, prófessor, í heimsókn í Skálholti, sem varð til
þess, að hneykslanleg málaferli urðu milli hans og Magnúsar í
Bræðratungu. Magnús hélt því fram, að Árni hefði fíflað konu sína.
Þarna var kominn efniviðurinn í skáldsögu Halldórs Kiljan Laxness „Hið
ljósa man". Magnús Gíslason (1704-1766), amtmaður, bjó um tíma í
Bræðratungu. Hann stuðlaði mjög að ýmsum framförum, mikill
ættjarðarvinur og skörungur. |