|
Hvalsneskirkja er í Útskálaprestakalli í
Kjalarnesprófastsdæmi. Steinsmiðirnir Magnús Magnússon
og Stefán Egilsson reistu hana á árunum 1886-87 og
sóknarpresturinn vígði hana á jóladag 1887. Ketill Ketilsson,
hreppsstjóri í Kotvogi og eigandi Hvalsnessjarðarinnar, lét
reisa kirkjuna. Húnn er hlaðin úr tilhöggnum steini. Magnús
Magnússon frá Gauksstöðum í Garði drukknaði veturinn 1887.
Þá tók við verkinu
Stefán Egilsson frá Reykjavík. Magnús Ólafsson,
trésmíðameistari úr Reykjavík, sá um tréverk. Kirkjan var tekin
til gagngerra endurbóta 1945 undir umsjón Guðjóns Samúelssonar,
húsameistara ríkisins.
Mesti dýrgripur
kirkjunnar er vafalaust legsteinninn, sem séra Hallgrímur
Pétursson hjó og setti á leiði Steinunnar, dóttur sinnar.
Steinninn fannst, þegar grafið var fyrir stétt, sem
steypa átti fyrir framan kirkjudyr 1964. Hann mun hafa
legið þar alllengi, jafnvel verið fluttur á þann stað úr
kirkjugarði þegar kirkjan var reist. Steinninn hefur
einhvern tíma brotnað og vantar því stafi aftan á nafnið svo
og síðasta staf ártalsins, en það mun eiga að vera 1649. |