|
Í
katólskum sið voru kirkjur staðarins helgaðar Maríu
guðsmóður og voru útkirkjur frá prestssetrinu í Miðdal í
Laugardal þar til þær urðu útkirkjur frá Torfastöðum með
lögum árið 1880. Kirkjunni var þjónað frá Torfastöðum og Skálholti til
1963. Lengi var þjónað
í stofunni í Úthlíð eftir að kirkjan fauk 1936.
.
Nýja kirkjan
er hátíðleg og falleg og blasir víða við
í nágrenninu. Hún var reist árið
2005-2006 í minningu Ágústu Ólafsdóttur,
eiginkonu Björns Sigurðssonar bónda í Úthlíð.
Hún
lést fyrir aldur fram haustið 2004.
|