|
Neskirkja er í Grenjaðarstaðaprestakalli í
Þingeyjarprófastsdæmi. Nes er bær, kirkjustaður og fyrrum
prestssetur í Aðaldal. Prestakallið var lagt niður 1860 og sóknin
lögð til Múla en nú er Nes útkirkjustaður frá Grenjaðarstað.Katólskar kirkjur í Nesi voru helgaðar heilagri Ceciliu.
Turnlaussa
timburkirkjan, sem nú stendur, var byggð 1903. Eiríkur Þorbergsson
í Húsavík var yfirsmiður. Söngloft er í vesturenda, þvert yfir
kirkjuna og svalir að norðan og sunnan. Klukknaportið er áfast
vesturgafli. Kirkjan var stækkuð og endurbætt árið 1977,
forkirkja reist og kór byggður.
Gréta og Jón Björnsson máluðu
og skreyttu kirkjuna. Eyjólfur Eyfells málaði altaristöfluna og
Hannes og Kristján Vigfússynir gerðu skírnarsáinn 1980. |