|
Geirsstaðakirkja er endurgerð
torfkirkja, en frumgerðin er talin vera frá þjóðveldisöld
(930-1262). Árið 1997 hófst fornleifauppgröftur í
landi Geirsstaða í Hróarstungu undir stjórn Steinunnar
Kristjánsdóttur fornleifafræðings. Hann sýndi, að á
landinu stóð fornt býli - lítil torfkirkja, langhús og tvær
aðrar rústir. Umhverfis þær var hringlaga garður.
Geirsstaðakirkja var endurbyggð í landi Litla-Bakka í
Hróarstungu 1999-2001 undir leiðsögn Gunnars Bjarnasonar
húsasmíðameistara, Guðjóns Kristinssonar torfhleðslumanns og
safnstjóra Minjasafns Austurlands. Kirkjan var byggð
með fjármagni, sem kom að miklu leyti úr sjóðum
Evrópusambandsins, en einnig frá Vísindasjóði Rannsóknarráðs
Íslands, Norður-Héraði og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.
Geirsstaðakirkja var blessuð sumarið 2001 af sóknarprestinum
á Eiðum og prófasti Múlaprófastsdæmis, Jóhönnu Sigmarsdóttur, og skírt í henni sama
sumar. |