Péturskirkja Akureyri,

Meira um Ísland


PÉTURSKIRKJA
Akureyri

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Katólska kirkjan keypti tvö hús á Akureyri árið 1954.  Annað var notað fyrir kapellu og þar bjó löngum prestur.  Líknarsystir frá Írlandi hefur séð um hana síðan 1995 og safnað saman katólikkum til messu, sem prestur frá Reykjavík annast.  Söfnuðurinn stækkaði verulega og því voru gerðar áætlanir 1998 um að breyta öðru húsinu í kirkju með safnaðarsal.  Umsjón með verkinu hafði Aðalgeir Pálsson og Kristjana Aðalgeirsdóttir, arkitekt gerði teikningar að breytingunum.  Jóhannes Gijsen, biskup, blessaði kirkjuna 3. júní 2000 og nefndi hana Péturskirkju.  Jafnframt stofnaði hann Péturssöfnuðinn, sem nær til Norður- og Austurlands.  Prestur býr að Eyrarlandsvegi 26 við hlið kirkjunnar auk þriggja karmelsystra af guðlegu Hjarta Jesú.
Nánar


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM