Karmelkapellan Hafnarfirði,

Meira um Ísland


KAPELLA KARMELKLAUSTURSINS
Ölduslóð, Hafnarfirði

.

.
 


Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Árið 1939 komu karmelnunnur frá Hollandi til að stofna Klaustur í Hafnarfirði.  Leið þeirra lá vestur til BNA vegna stríðsins og þær snéru aftur 1945.  Næsta ár var klaustrið blessað.  Nunnurnar urðu að hverfa á braut árið 1983 vegna þess, að nýliðun átti sér ekki stað og biskupsdæmið í Reykjavík tók að sér umsjón byggingarinnar.  Árið 1985 komu 16 karmelsystur frá Póllandi og reglunni bættist liðsauki á hverju ári, þegar nýjar systur bættust í hópinn.  Loks varð að skipta reglunni og árið 1990 var stofnað nýtt samfélag í Tromsö í Noregi og annað í Hannover í Þýzkalandi 1998.  Kapella klaustursins er alltaf opin gestum, sem geta einnig beðið um viðtöl varðandi andleg málefni.  Í verzlun klaustursins eru trúarlegir munir til sölu.
Nánar


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM