|
BAROKORGEL LANGHOLTSKIRKJU
Þegar tekin var ákvörðun um val á orgeli fyrir
Langholtskirkju, var margt sem hafa þurfti í huga.
Langholtskirkja er að mörgu leiti sérstakt hús. Hljómburður
kirkjunnar er einstakur, mikill og hlýr. Hann er og nálægur
hljómburði bestu hljómleikasala en þó með eftirhljómi sem
uppfyllir þær væntingar sem gerðar eru til kirkjuhljóms.
Kirkjan sjálf er afar einföld í sniðum. Allar línur eru
hreinar og einfaldar. Mörgum hefur fundist hún köld þar til
hún fyllist af tónlist. Reynslan af flutningi helstu verka
baroktímans sýndi að sú tónlist fer henni vel. Því var
ákveðið að velja henni hljóðfæri sem hæfði hljómburðinum og
væri einnig mótvægi við einfaldleik hennar, gleddi augað
jafnt sem eyrað.
Með barokorgeli Langholtskirkju hefur íslenska
orgelfjölskyldan eignast stílhreint hljóðfæri sem skilar
baroktónlist frábærlega. Rómantíska tónlist er þó vel hægt
að leika þó vissulega megi þá halda því fram að það hafi of
mikinn barokhljóm. En þá er svarið einfalt: þetta er
barokorgel.
Hið nýja Noack orgel er gersemi fyrir auga og eyra og ásamt
hinum áhrifamikla glugga Sigríðar Ásgeirsdóttur hefur
orgelið gert Langholtskirkju að enn betri helgidómi. Á
heimasíðu Noack má sjá mynd af orgelinu og raddskipan:
Vefslóð er:
http://www.noackorgan.com/ |