|
Jósefssystur
byggðu sjúkrahús og Kapellu í Hafnarfirði árið 1925.
Marteinn Meulenberg SMM, postullegur leiðtogi, blessaði
kapelluna, sem var safnaðarkirkja nýstofnaðrar Jósefssóknar á staðnum,
5. september 1926. Jósefssystur
urðu að selja sjúkrahúsið og kapelluna 1987-88 og sóknarpresturinn,
Hjalti Þorkelsson, hafði umsjón með byggingu nýrrar kirkju með áföstum
prestbústað og safnaðarsal að Jófríðarstöðum.
Knútur Jeppesen var arkitekt.
Alfred Jolson, biskup, vígði hina nýju kirkju 3. júlí 1993.
Krossferilsmyndir eftir svissnesku listakonuna Bradi Barth voru
settar upp á kirkjuveggina 1997.
Nánar |