|
Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu
er að Ásabraut 2, 210 Garðabær. Síminn er 554-7105.
Trúboðsstarf Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu
hófst á Íslandi árið 1851. Fyrstu trúskiptingarnir, tveir
ungir námsmenn nýkomnir frá Danmörku, urðu fyrir miklu
aðkasti og þeim var jafnvel bannað með dómi að prédika
opinberlega. Þeir gáfust þó ekki upp og fyrsta greinin var
stofnuð 1853 og starfrækt af og til fram yfir aldamótin
1900. Á þeim tíma voru kirkjuþegnar hvattir til að safnast
til Utah í Bandaríkjunum og þrátt fyrir ofsóknir eða ef til
vill vegna þeirra fluttust á næstu áratugum yfir 400 manns
til Utah.
Vegna ofsókna og svo vegna þess að nýskírðir fluttust
flestir af landi brott festi kirkjan ekki rætur á Íslandi og
lagðist trúboð af 1914. Það hófst ekki á ný fyrr en 1975 er
Byron Gíslason og fjölskylda hans frá Spanish Fork í Utah
kom til starfa við kristniboð á Íslandi. Spanish Fork er
elsta íslenska samfélagið í Bandaríkjunum. Reykjavíkurgrein
var síðan stofnuð 8. ágúst 1976 með um 10 greinarmeðlimum og
óx sú tala í um 40 fyrsta starfsárið.
Kirkjan hefur frá árinu 1977 haft einn starfsmann við
þýðingar. Allt annað starf í kirkjunni er sjálfboðastarf. Nú
eru öll helgirit kirkjunnar, önnur en Biblían, komin út í
endurskoðaðri þýðingu auk fjölmargra rita annarra.
Mormónsbók—Annað vitni um Jesú Krist var fyrst gefin út á
íslensku árið 1981.
Árið 2000 var viðburðaríkt fyrir kirkjuna á Íslandi, en í
viðbót við áðurnefnda útgáfu helgirita kirkjunnar í einu
bindi, þá var kirkjubygging vígð að Ásabraut 2 í Garðabæ.
Einnig var forkunnarfagurt minnismerki um 410 útflytjendur
til Bandaríkjanna vígt við „Mormónapoll“ í Vestmannaeyjum og
er það gjöf afkomenda þeirra vestra. Þá var einnig opnað í
Vesturfarasetrinu á Hofsósi sérstök sýning helguð Utah-förum
nítjándu aldar og þar er þeirri sögu allri gerð góð skil og
er reyndar talin ein besta sýning sem upp hefur verið sett
án þess að vera beint á vegum kirkjunnar.
Þá átti sér stað hinn merki viðburður að forseti kirkjunnar,
Gordon B. Hinckley, heimsótti Ísland árið 2002 til að hvetja
og styrkja kirkjuþegna hér. Einnig átti hann fund með
forseta Íslands. Og sagan heldur áfram. Landnám Kirkju Jesú
Krists hinna Síðari daga heilögu á Íslandi er aðeins rétt að
byrja. |