|
Hvammstangakirkja
er höfuðkirkjan í Breiðabólstaðarprestakalli í Húnavatns-prófastsdæmi.
Hún var vígð 21. júlí 1957.
Húsið er úr steinsteypu og rúmar 160 manns í sæti.
Snorri Jóhannesson var yfirsmiður.
Kirkjan á m.a. Kristslíkneski á altari, sem séra Valdimar
Eylands, prestur í Winnipeg, gaf kirkjunni, og merkilega skírnarskál
úr messing frá 1753.
Hvammstangakirkja var útkirkja frá Melstað,
sem er prestsetur. |