|
Maríukirkjan
er að Raufarseli 8 í Breiðholti í Reykjavík.
Hún var byggð eftir umræður um stofnun annars söfnuðar í
Reykjavík árið 1983.
Þessi nýi söfnuður skyldi einnig ná yfir Suðurlandið.
Samþykkt var að reisa þessa kirkju eftir teikningum Hannesar
Davíðssonar, arkitekts.
Kirkjan var blessuð 25. marz 1985 og tileinkuð Maríu mey, Stjörju
hafsins.
Hún var stækkuð 1997 og klukka sett upp um leið.
Jóhannes Gijsen, biskup, vígði kirkjuna 24. maí 2001 og lét
koma fyrir styttu af Maríu mey.
Þessi stytta er eftirmynd af miðaldastyttu, sem stendur í
Vorfrúardómkirkjunni í Maastricht í Hollandi.
Alfons Casterman, nafnbiskup í Skálholti og vígslubiskup í
Roemond í Hollandi, gaf hana.
Nánar |