|
Heimkynni
blöðruselsins eru aðallega við Grænland og Nýfundnaland en hann flækist
víða, s.s. til Bretlands, Íslands og Noregs.
Hann kæpir á ísröndinni í apríl til maí.
Ofan á snjáldri hans er stór blaðra /(20x30 sm), sem hann blæs
upp, þegar hann er í vígahug. Hann
var annar mesti veiðiselur Grænlendinga.
Norskir
selfangarar veiddu hann mikið við Grænland á síðari hluta 19.
aldar. Brimillinn getur
verið hættulegur veiðimönnum. Hann
ræðst á báta og brýtur þá. Hámarkslengd er tæpir 3 m. |