|
Útselur er nokkuð
stærri end landselur, allt að 3 m að lengd og 3-400 kg.
Hann er gildastur um bógana og flatvaxinn.
Hann hefur stórt og frammjótt höfuð og liturinn er
breytilegur eftir aldri og kyni. Algengasti
liturinn er grár, dökkir dílar á baki og hliðum og einlitur kviður,
höfuð og hreifar. Hann heldur sig við nyrztu strendur Norður-Atlatnshafs og
fer sjaldan norður í Íshaf. Hann
heldur sig aðallega við suður- og vesturströnd landsins og finnst frá
Eystrahorni og Hvalbak og allt norður á Skaga.
Hann er mest áberandi á skerjum og útkjálkum fyrir opnu hafi
og á fáförnum stöðum á söndum suðurstrandarinnar.
Mest er af honum í Breiðafirði, í Hvalseyjum við Mýrar , við
Vestfirði, Strandir og Skaga.
Útselurinn virðist
vera fjölkvænisdýr utan Íslands.
Samkvæmt erlendum rannsóknum safnast einungis kynþroska dýr
saman í látrum, sem brimlarnir verja með kjafti og klóm.
Brimlar, sem hafa ekki helgað sér látur, halda sig í fjarlægð.
Kæpingin hefst á haustin og nær yfir tímabilið frá oktober
til febrúar. Venjulega fæðir
hver urta aðeins einn kóp og mökun hefst að loknu uppeldi kópanna,
sem fá móðurmjólkina á 6 klst. fresti.
Brimlarnir eru ekki síður vakandi yfir urtubúum sínum á mökunartímanum
og verja þær og látrin með sama krafti.
Hver brimill gagnast allt að 20 urtum.
Fæðingarfeldur kópanna þolir ekki bleytu, þannig að þeir
halda sig á þurru landi þar til háraskipti hafa orðið.
Þroskatöf fósturs útselsins er 102 dagar.
Selirnir léttast talsvert um kæpingar- og mökunartímann vegna
þess að þeir nærast ekki á meðan.
Háraskipti fullorðinna sela verða 2-3 mánuðum eftir mökunartímann
og urturnar fella hár á undan brimlunum. |