|
Á sínum tíma var Grenjaðarstaður höfuðból sveitarinnar. Flatarmál
bæjarhúsanna er 775 m². Elzta hluta þeirra, innganginn og norðurhúsið, lét séra
Magnús Jónsson (1809-1889) byggja. Árið 1877 voru bæjarhúsin í niðurníðslu og
séra Benedikt Kristjánsson lét gera þau upp, nema austurinnganginn og norðurhúsið.
Á hans dögum bjuggu allt að 30 manns í bænum. Árið 1915 eru 15 manns skráðir
þar. Séra Þorgrímur Sigurðsson og fjölskylda hans, sem komu á staðinn 1932, voru
síðustu íbúar bæjarins. Árið 1955 endurbyggði Þjóðminjasafnið bæinn. Því verki var lokið 1958 og hinn 9. júlí sama ár var byggðasafnið
opnað.
Sími: 464 3688
Opið í júní, júlí og ágúst kl. 10:00-18:00. |