|
Þessi söfn eru að Brekkugötu 17.
Amtsbókasafnið er opið allt árið frá kl.
10:00-19:00 virka daga og á laugardögum á sama tíma milli 1.
september og 1. júní.
Almenningsbókasafn
með bókaútlán, hljóðbókum, myndböndum og geisladiskum.
Lestrarsalur með ljósritunar- og upplýsingaþjónustu.
Amtsbókasafnið var stofnað 1827 en hefur verið bæjarbókasafn
Akureyrar frá 1906.
Héraðsskjalasafnið á Akureyri er opið
Mánudaga og fimmtudaga kl. 10:00-18:00, þriðjudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl. 10:00-16:00.
Safnið hefur að geyma skjöl sveitarfélaga og annarra
opinberra stofnana í héraðinu auk einkaskjalasafna
fyrirtækja, félaga og einstaklinga.
Safngestir njóta leiðbeininga og aðstoðar í lestrarsal,
upplýsingaþjónustu og heimildaleitar.
Héraðsskjalasafnið var stofnað formlega árið 1969. |