|
Davíðshús er að Bjarkarstíg 6. Það
er opið daglega frá 15. júní til 1. September kl. 15:00-17:00.
Það var heimili Davíðs Stefánssonar, skalds frá Fagraskógi
(1895-1964). Það var reist 1944 og er gott dæmi um einbýlishús
frá þeim tíma.
Þar er varðveitt innbú skáldsins, bókasafn
og munir úr eigu þess. Akureyrarbær keypti bókasafn Davíðs að
honum látnum og var það þá eitt stærsta og verðmætasta einkabókasafn
landsins.
Á neðri hæð
hússins er íbúð, sem lista- og
fræðimenn hafa fengið til afnota endurgjaldslaust, nema hvað
„ætlast er til þess að þeir sem
dveljast þar, komi á einhvern hátt á framfæri, hér á
Akureyri, því sem viðkomandi er að vinna að í sinni list-
eða fræðigrein í samráði við menningarfulltrúa Akureyrar
hverju sinni”, eins og segir í
samningi um afnot af Davíðshúsi. |