|
Listasafnið á Akureyri er yngsta
listasafnið á landinu og jafnframt það eina sinnar tegundar utan
höfuðborgarsvæðisins. Safnið er til húsa við Kaupvangsstræti 12 í
Listagilinu svokallaða, hjarta bæjarins, sem einnig gengur undir heitinu
Grófargil. Hugmyndin að stofnun listasafns á Akureyri kom upphaflega frá
Jónasi Jónssyni frá Hriflu í blaðagrein sem hann skrifaði árið 1960.
Þrír áratugir liðu uns hugmyndin um Listasafnið á Akureyri komst aftur í
umræðuna og varð hún loksins að veruleika á afmælisdegi bæjarins þann
29. ágúst 1993.
Listasafnið á Akureyri er til húsa þar sem áður var
Mjólkursamlag KEA, en byggingin er undir sterkum áhrifum frá
Bauhaus-skólanum og hinni alþjóðlegu funkis-hreyfingu.
Listasafnið á Akureyri er miðpunktur og sameiningartákn
þessarar Listamiðstöðvar í Grófargili.
Markmið
Listasafnsins á Akureyri er að efla myndlistarlíf á
Akureyri, auka þekkingu og áhuga bæjarbúa á myndlist og
stuðla að framgangi sjónlista og listmenntunar. Listasafnið
á Akureyri leggur áherslu á fjölbreytt sýningarhald og
leitast við að kynna það framsæknasta á innlendum jafnt sem
erlendum sýningarvettvangi.
Listasafnið
á Akureyri er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17.
Aðgangseyrir kr. 400, frítt á fimmtudögum.
Sími 461 2610 - Fax 461 2969 |