|
Minjasafnið
á Akureyri er við Aðalstræti 58. Þar eru varðveittir
munir, sem lýsa lifnaðarháttum fyrri tíma við Eyjafjörð, listiðnaður
og ljósmyndir. Þar er einnig gott
safn af ljósmyndum akureyrskra ljósmyndara. Minjasafnið hefur umsjón með
friðuðum fornleifum og húsum í Eyjafirði auk þess að gegna söfnunar,
varðveislu og sýningarhlutverki.
Garðurinn við safnið er fyrsta trjáræktarstöð
Íslands, þar sem ræktun hófst 1899. Kirkja var flutt til
Akureryar frá Hrafnagili 1862 og prestssetur 1880. Gamla kirkjan,
sem stóð í garði núverandi Minjasafns, var rifin 1941 og gömul
sveitakirkja frá Svalbarði (1846) var endurbyggð þar í staðinn.
Útgáfa: Bæklingur,
póstkort, sýningarskrár, veggspjöld, rannsóknarskýrslur.
1.6. -15.9.: Opið
dagl.: 10 -17.
16.9. - 31.5.: Opið laugardaga: 14 -16. Einnig opið eftir samkomulagi. |