Nonnahús er að Aðalstræti 54. Það er
opið daglega 1. júní - 15. September kl. 10:00-17:00. Það er
í svartbikuðu bakhúsi, einu þriggja bernskuheimila rithöfundarins
og jesúítaprestsins Jóns Sveinssonar, Nonna (1857-1944), höfundar
hinna vinsælu Nonnabóka.
Þar eru ýmsir munir úr eigu
Nonna og
einnig bækur hans á mörgum tungumálum. Húsið er meðal
elztu húsa Akureyrar, reist 1850.