Pakkhúsið á Hofsósi er meðal elztu húsa sinnar
tegundar á landinu. Það er stokkbyggt bjálkahús með háu
skarsúðarþaki. Húsið kom hingað árið 1777 á vegum
konungsverzlunarinnar síðari, hinnar svokölluðu Grænlands-,
Finnlands- og Íslandsverzlunar, sem hafði síðust leyfi til einokunar
á Íslandi. Tíu árum síðar var henni aflétt og fríhöndlun tók
við. Húsið hefur ævinlegar verið notað sem vörugeymsla, fyrst
fyrir verzlanir danskra kaupmanna og síðar Íslendinga.
Það hýsti mismunandi
varning, þegar kom fram á 20. öld, s.s. ull, hey, veiðarfæri
og kjöt. Saga hússins áður en það kom til landsins er ókunn,
en vegna blýskota og gata eftir kúlur, hefur sá orðrómur
verið viðloðandi, að það hafi fyrrum verið í þjónustu danska
hersins í allt öðrum hluta heimsins. Árið 1991 var gert við
húsið og viðir þess
endurnýjaðir að nokkru leyti. Á neðri hæð þess eru sýndir
munir tengdir Drangeyjarútvegi og hákarlaveiðum. Á efri
hæðinni eru stundum haldin samkvæmi af ýmsum tilefnum.
Allt
frá landnámi í Skagafirði notfærðu Vestlendingar (af Skaga og
Reykjaströnd) og Austlendingar (af Höfðaströnd og úr
Viðvíkursveit) sér Drangey, sem var nýtt á marga vegu. Þaðan var
stundað útræði, þar var beit fyrir fé allt árið, þar mátti
síga eftir eggjum og veiða fugl á fleka. Alla jafna var eggver leigt
vissum mönnum, en allir máttu veiða fugl á fleka og leggja lóð í
sjó. Drangey tilheyrir Hofshreppi. |

 |