|
Annað land – Annað
líf!
Vesturferðir
Íslendinga 1870 – 1914.
Í Vesturfarasetrinu á Hofsósi er margþætt og lifandi starfsemi. Í
húsinu er fræðandi og skemmtileg sögusýning, ættfræði- og
upplýsingamiðstöð, bókasafn, fyrirlestrasalur og verzlun. Rekstur
setursins er í höndum Snorra Þorfinnssonar ehf. Fyrirtækið dregur
nafn sitt af syni Þorfinns karlsefnis og Guðríðar Þorbjarnardóttur,
sem er talinn hafa verið fyrsta hvíta barnið fætt vestanhafs. Eitt
af meginmarkmiðum fyrirtækisins er að vinna að auknum samskiptum
Íslendinga og afkomenda vesturfaranna.
Þú ert að hefja ferð til fortíðar. Á göngu
þinni um gamla kaupfélagshúsið kynnist þú Íslandi á tímabilinu
1870-1914 og ferðum Íslendinga til Vesturheims. Gerð er grein fyrir
lífsskilyrðum á Íslandi, ástæðum vesturferða, ferðalaginu yfir
hafið og landnámi í Ameríku.
-
Ísland á 19. öld. Fólksfjöldi, fjöldi útflytjenda og
árferði. Mormónar og Brasilíufarar verða fyrstir til að flytja
vestur um haf.
-
Aðdragandi vesturferða. Áróður fyrir landnámi í Ameríku og
andóf gegn honum. Samspil breyttra verzlunarhátta og vesturferða.
-
Umboðsmenn, „agentar", og hlutverk
þeirra.
-
Búskapur á 19. öld. Búizt til
brottfarar.
-
Íslenzkt þjóðlíf í uppstokkun. Nýir mögulekar fyrir þá,
sem gátu breytt lífsháttum sínum.
-
Líf þurrabúðarfólks.
-
Breytingar í atvinnulífi þjóðarinnar á tímabilinu
1870-1914. Nýjungar í búskap, stórefling í sjávarútvegi,
iðnvæðing og þéttbýlismyndun.
-
Verbúð.
-
Flutningar vestur um haf, farkostir og
ferðatilhögun.
-
Um borð í farþegaskipi. Aðbúnaður um
borð.
-
Bjálkakofi. Fyrstu híbýli
landnemanna.
-
Ameríka. Land tækifæranna. Íslendingabyggðir, aðstæður og
efnahagur.
-
Íslenzkir landnemar í Vesturheimi. Nágrannar, atvinna, gamlir
siðir í nýju umhverfi, útgáfumál og þekktir
Vestur-Íslendingar.
-
Verzlun. Minjagripir.
-
Fyrirlestrarsalur.
-
Bókasafn.
-
Ættfræðisetur,
upplýsingamiðstöð.
-
Sýningarsalur, sérsýningar.
|